Nú er ég búin í flestum prófunum mínum þessa önnina! Algjör snilld að vera í smá fríi. Við byrjum ekki í næsta áfanga fyrr en á föstudaginn þannig að nú eru 3 heilir dagar sem ég þarf ekki að gera neitt sérstakt!!




Eftir prófið í gær í samskiptafræði (sem gekk by the way mjög vel

) þá fórum við Árni og keyptum okkur rúm í Húsgagnahöllinni. Við vorum búin að ákveða að gera það í haust en svo var eitthvað svaka tilboð þar á ekkert smá góðu rúmi svo við ákváðum bara að skella okkur á þetta

Mamma og pabbi keyptu svo gamla rúmið af okkur til að hafa í nýja herberginu í Þrastarimanum. Við fengum jeppan frá pabba hans Árna lánaðan til að sækja nýja rúmið okkar, fara með það í Hátúnið og fara svo með hitt rúmið á Selfoss. Við settum nýja rúmið upp og það var algjör snilld að sofa í því í nótt!! Ég svaf eins og steinn og var alltaf að leggja mig aftur í morgun og hanga í rúminu mínu. Við fórum svo á Selfoss og vorum þar fram á kvöld í gær.
Ég elska nýja rúmið mitt

Í dag, þegar ég var loksins vöknuð, fór ég í ræktina með Eddu. Það var rosalega gott. Við fórum fyrst út að hlaupa og svo lyftum við. Ég er búin að vera allt of léleg í þessu... en nú skal taka á þessu

Ég ætla að vera dugleg í þessu núna og koma mér í soldið gott form fyrir sumarið! Það var svo ótrúlega gott veður að ég ákvað svo að labba niðrí bæ og hitta Sólveigu þar á kaffihúsi. Við fengum okkur beiglur og kaffi (eða ég fékk mér náttúrulega kakó

) og sátum úti á palli á kaffi Óliver. Ég hitti svo Möggu þegar ég var að labba heim og við löbbuðum aðeins um og spjölluðum.
Í kvöld er svo planið að fara með Eddu til Önnu og Öldu og borða saman pizzu og hafa það skemmtilegt. Hlakka til, allt of langt síðan við höfum hisst allar. Hefði reyndar verið gaman að hafa Fjólu líka...
Allavega, nóg í bili

Endilega kommentið eitthvað skemmtilegt!